Junghans sameinar þýsk gæði, fagurfræði og hefð í úrum sem endurspegla meira en 160 ára sögu merkisins. Hönnunin er tímalaus, innblásin af Bauhaus-stíl, þar sem notagildið mótar formið. Með gæðum, áreiðanleika og nákvæmni hefur Junghans skapað sér sess sem eitt virtasta úramerki heims.
FLOKKAR
VÖRULÍNUR
max bill
Tímalaus, þýsk iðnhönnun. Heimsþekkt skífa. Sem nemandi við Bauhaus-skólann vann Max Bill án alls óþarfa við hönnun. Þessi mögnuðu Bauhaus-úr hafa haldist nánast óbreytt í yfir 60 ár.
Skoða línu
Meister
Hér færðu mestu fágunina og gæðin frá Junghans. Úr í Meister-línunni standa fyrir þýska handverkslist í sinni tærustu mynd.
Skoða línu
Form
Fá úr bjóða upp á jafn einfalda hönnun og nýstárlega eiginleika og Form, frá fallegum dömuúrum til sportlegra, nútímalegra skeiðklukkuúra. Hér þarf ekki að velja á milli hönnunar og nýsköpunar.
Skoða línu
MICHELSEN MÆLIR MEÐ
Junghans max bill
Arkitekinn, listamaðurinn og vöruhönnuðurinn Max Bill nam við Bauhaus-skólann og var einn af áhrifamestu mönnum hreyfingarinnar. Fyrst hannar hann vegg- og eldhúsklukkur fyrir Junghans 1956 en umbreytir hönnuninni í armbandsúr 1961, sem er nánast óbreytt enn þann dag í dag. Árið 1964 vinna Junghans hvorki meira né minna en sex iF Design Awards fyrir úr og klukkur frá honum. Síðan þá hafa bæst við fjöldi annarra verðlauna í max bill línuna, m.a. nokkur iF og Red Dot. Vertu með hluta af hönnunarsögunni á úlnliðnum.
HVERS VEGNA JUNGHANS?
Að velja sér Junghans úr er að velja sögu, hefð og arfleifð þýskrar hönnunar þar sem hvert smáatriði þjónar tilgangi. Hönnunin einkennist af hreinleika, jafnvægi og hlutföllum sem endurspegla Bauhaus-hugmyndafræðina, þar sem einfaldleikinn er gerður að listformi, enda eru úrin frá Junghans margverðlaunuð yfir áratugaskeið.
Junghans var á einum tímapunkti stærsti úraframleiðandi heims og hefur, á þessum rúmu 160 árum sem það hefur starfað, framleitt yfir 500 milljónir tímamæla. Merkið hefur lengi verið þekkt fyrir úr sem standast tímans tönn, hvort sem þau eru knúin mekanísku eða quartz úrverkum.
Í dag sameinar Junghans þessa arfleifð með nútímatækni og nákvæmri framleiðslu sem gerir hvert úr einstakt og stendur fyrir gildi sem hverfa aldrei úr tísku.
Magnús D. Michelsen, sölustjóri Michelsen
