acredo hjá Chronos
acredo er þekkt um allan heim fyrir hringa af óviðjafnanlegum gæðum, fullkomna til að fagna stóra deginum. Hjá Chronos og acredo færðu bara það besta: einstaka þjónustu og hönnun og þýskt gæðahandverk.
Sérsmíði er grunnurinn að öllu hjá acredo. Í staðinn fyrir að velja úr takmörkuðu úrvali giftingahringa, sem tugir annarra para hafa þegar valið, er acredo hannað frá grunni af ykkur, með aðstoð sérfræðinga Chronos. Framleiðsluferlið tryggir að hringarnir eru í hæsta gæðaflokki og koma til með að endast ævina alla. Gullið er þjappað, svo það er þéttara en almennt gengur og gerist í skartgripum – þó karatafjöldinn sé sá sami.
Bókaðu tíma
Giftingahringaráðgjöf tekur um eina klukkustund. Bókaðu tíma hér og hannaðu þinn draumahring í næði og þægilegu andrúmslofti. Sérfræðingur Chronos sest niður með þér og fer yfir alla möguleikana og aðstoðar þig. Þinn hringur, þín hönnun.
Trúlofunarhringaráðgjöf tekur um 45 mínútur. Sama hvort þú sért ein/n og ætlar að koma ástinni á óvart eða þið komið saman, þá getum við hjálpað þér og ykkur við að hanna ótrúlega fallega trúlofunarhringa. Endalausir stílar og möguleikar í boði.