Ást er í kjarna alls sem acredo gerir. Ástin milli tveggja einstaklinga og ást þeirra á vörunni.

Hver manneskja og hvert samband er einstakt. Þess vegna eru allir giftingahringar sérframleiddir fyrir hvert par, sem hannar hringana sjálft. Framúrskarandi gæði og engir tveir hringar eru eins.

acredo hjá Chronos

acredo er þekkt um allan heim fyrir hringa af óviðjafnanlegum gæðum, fullkomna til að fagna stóra deginum. Hjá Chronos og acredo færðu bara það besta: einstaka þjónustu og hönnun og þýskt gæðahandverk.

Sérsmíði er grunnurinn að öllu hjá acredo. Í staðinn fyrir að velja úr takmörkuðu úrvali giftingahringa, sem tugir annarra para hafa þegar valið, er acredo hannað frá grunni af ykkur, með aðstoð sérfræðinga Chronos. Framleiðsluferlið tryggir að hringarnir eru í hæsta gæðaflokki og koma til með að endast ævina alla. Gullið er þjappað, svo það er þéttara en almennt gengur og gerist í skartgripum – þó karatafjöldinn sé sá sami.

Ást í hverju smáatriði

Hjá acredo er ástin í hjarta alls sem þau gera – ástin milli tveggja einstaklinga, en einnig ást á handverkinu sjálfu. Hefð og nýsköpun fara saman, með gildi um sjálfbærni sem sameinast háum gæðastöðlum.

acredo einkennist af:

  • einstakri hönnun
  • hringum sem er ótrúlega þægilegt að bera
  • einstökum, og fyrsta flokks, steinaísetningum
  • algjöru frelsi í einstaklingsbundinni hönnun
  • hæstu mögulegu gæðum