Frá árinu 1936 hefur Suunto frá Finnlandi verið leiðandi í ævintýrum og nýsköpun, allt frá uppfinningu vökvafylltra áttavita til háþróaðra heilsuúra, köfunartölva, hjartsláttarmæla og heyrnartóla. Suunto sameinar bæði endingu og gæði, svo þeim er treyst af íþróttafólki og ævintýramönnum um allan heim, við skandinavíska hönnunin  svo þau geta verið borin á úlnliðnum alla daga.

Samanburður á Suunto úrum

Það getur verið erfitt að sjá muninn á heilsuúrum og hvað hentar hverjum. Hér að neðan er tafla sem sýnir helsta muninn milli módela en við reynum að útskýra muninn hér líka. Öll úrin eru jafn vönduð og góð, virknin er í grunninn nánast sú sama milli allra úra, en mismunandi eiginleikar geta hentað mismunandi aðilum. Hér má sjá algjöran samanburð á heimasíðu Suunto.

Suunto Race 2 / Race / Race S:
Þetta er úr sem við teljum henta flestum, bæði þeim sem eru að leita að æfingaúri en líka snjallúri almennt – sérstaklega þar sem það kemur í tveimur stærðum. Gullfallegur og bjartur AMOLED skjár og góð rafhlöðuending. Race 2 / Race / Race S henta sérstaklega vel þeim sem eru virk í skokki, styttri og lengri hlaupum, hjólreiðum og allri hreyfingu sem tekur mið af hraða og vegalengd. Suunto Race 2 / Race / Race S geta mælt mjólkursýruþröskuldinn. Race S eru 50m vatnsvarin, svo það má synda með þau og stunda léttari vatnasport. Race og Race 2 eru 100m vatnsþétt, svo þau þola sund, yfirborðsköfun (snorkl) og brimbrettabrun.

Run:
Run er gríðarlega létt, aðeins 36g, og einfaldari og hagkvæmari en önnur úr frá Suunto. Þau eru frábær fyrir öll sem eru að taka sín fyrstu skref í hreyfingu eða vita nákvæmlega hvað þau þurfa. Þessi bjóða ekki jafn margar íþróttir en henta frábærlega fyrir allar íþróttir þar sem þú ert að mæla hraða og vegalengdir, s.s. hlaup, göngur og hjólreiðar. Þú hefur leiðsögn (breadcrumb) en ekki ítarleg kort eins og í Race og Vertical. Run geta mælt mjólkursýruþröskuldinn. Run eru 50m vatnsvarin, svo það má synda með þau og stunda léttari vatnasport. Aðrir eiginleikar, eins og svefn- og hjartsláttarmælingar og GPS-nákvæmni er á pari við öll önnur Suunto.

Vertical:
Vertical / Vertical Solar eru með ruglaða rafhlöðuendingu – og Vertical Solar raunar bestu rafhlöðuendingu nokkurs heilsuúrs. Á móti er skjárinn ekki jafn bjartur og skarpur, þar sem hann notar MIP-tækni. Í útivist, og sérstaklega beinu sólarljósi, nýtur skjárinn sín mjög vel en þar er AMOLED er ekki jafn sterkur. Vertical hentar sérstaklega vel þeim sem eru í utanvegahlaupi, margra daga löngum hlaupum og göngum og í raun öllu sem á sér stað í náttúrunni og þeim sem vilja einstaklega góða rafhlöðuendingu.

Race 2 Race Race S Run Vertical Solar
Stærð 49 x 49 x 12.5 49 x 49 x 13.3 mm 45 x 45 x 11.4 mm 46 x 46 x 11.5 mm 49 x 49 x 13.6 mm
Þyngd 65 g (títaníum)
76 g (stál)
69 g (títaníum)
83 g (stál)
60 g 36 g 74 g (títaníum)
86 g (stál)
Skjár, gler Rispufrír safír Rispufrír safír Gorilla Glass Gorilla Glass Rispufrír safír
Skjár, stærð
& upplausn
1,5″ / 466 x 466 1,43″ / 466 x 466 1,32″ / 466 x 466 1,32″ / 466 x 466 1,40″ / 280 x 280
Skjár, gerð LTPO AMOLED AMOLED AMOLED AMOLED MIP
Vatnsvörn 100 m 100 m 50 m 50 m 100 m
Rafhlöðuending:
Þjálfun
(allt að)
55 klst All-Systems GNSS + Multi-Band
65 klst All-Systems GNSS + Single-Band
200 klst Power saving GNSS
50 klst All-Systems GNSS + Multi-Band
65 klst All-Systems GNSS + Single-Band
200 klst Power saving GNSS
30 klst All-Systems GNSS + Multi-Band
40 klst All-Systems GNSS + Single-Band
120 klst Power saving GNSS
20 klst All-Systems GNSS + Multi-Band
30 klst All-Systems GNSS + Single-Band
40 klst Power saving GNSS
90 klst Multi-Band
140 klst Single-Band
500 klst Power saving
Rafhlöðuending:
Hversdags
(allt að)
18 dagar Smartwatch
30 dagar Standby
16 dagar Smartwatch
26 dagar Standby
9 dagar Smartwatch
13 dagar Standby
12 dagar Smartwatch
20 dagar Standby
60 dagar Smartwatch
1 ár Standby
Kort án
nettengingar
Nei
ABC (Hæðarmælir,
loftvog & áttaviti)